Binnzinn pælir

Hugrenningar hversdagsmanns

05.10.2007 17:18:38 / binnzi

Að sumarfríi loknu...

Það er sumt í þessu lífi sem ég fæ seint skilið. Bridds er eitt af því. Ég reyndi um daginn að spila Bridds og spilaði heila kvöldstund og það sem ég lærði af því var ekki neitt. Það fór reyndar hrikalega í taugarnar á mér að í Bridds þá spilar ekki sá sem á sögnina (og þar af leiðandi bestu spilin) heldur leggur hann niður spilin sín og víkur frá borði. Hverjum datt þetta í hug… af hverju leggur meðspilarinn ekki spilin niður og leyfir þeim sem fékk góðu spilin að njóta þess..? Skrítið!

 

Annað sem ég fæ seint skilið er fólk sem skýrir fyrirtækin sín eitthvað útí hött. Ég ætlaði að hringja í eitthvað fyrirtæki um daginn til að leita að varahlut í bílinn hennar systur Birtu. Eitthvað var ég utan við mig (eins og gerist) þegar ég var að slá inn númerið og hringdi vitlaust. Þá svaraði einhver dama: “Týnda Teskeiðin góðann dag” og óþarft að segja þá sprakk ég úr hlátri. Hver skýrir fyrirtækið sitt Týnda Teskeiðin og hvað ætli þeir selji?? Ég reyndar dauðsé eftir því að hafa ekki spurt. Kannski maður geri sér ferð einn daginn til að tékka á því, við skjótum ekki lokum fyrir það.

 

Lítið hefur verið bloggað hér undafarið er það sökum sumarleyfa hjá Binnzanum. Hann hefur aðeins verið að skoða heiminn og freista gæfunnar, segjum bara að hann hafi verið sléttur!! Veturinn er framunda með sínu reglubundna skammdegi. Það er tími sem leggst vel í Binnzann, hann hressist allur þegar götur Reykjavíkur baðast í fljóðljósa-stemmingu og maður verður einhvernveginn meira bara einn með sjálfum sér.

 

Þannig að tímarnir eru bjartir þó svo að tímarnir sem bjart er styttist. Þetta hljómar kannski skrítið en svo er líka með Týndu Teskeiðina en það virtust allir í jafnvægi þar!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 21:09:34 / binnzi

Smásagan

Nú er allt að verða ka-reisí... ég sagði hérna fyrir nokkrum bloggum síðan að við íslendingar byggjum við lúxus-vandamál og enn og aftur er það að sannast. Nú hefur Villi flokksbróðir minn og Borgar-Vertinn sjálfur rifið kælinn úr vínbúðinni á Austurstræti.í þeirri von um að rónarnir hætti að betla klink af fólki til þess að fá sér einn kaldann... Það er sjaldan að ég bölvi gjörðum Sjálfstæðismanna en hvað er að!!!??!! Hélt einhver að rónarnir myndu EKKI DREKKA VOGANN BJÓR??? Vissulega þykir þeim örugglega betra að fá sér kaldan öl en menn sem drekka kardimonudropa og spritt til þess að koma sér í gang á morgnana munu algjörlega fyrir víst, ekki hætta að betla fyrir bjór vegna þess að hann sé volgur!

Ég sé þetta fyrir mér, Villi kallinn og Ívar Forstjóri ÁTVR á föstudags-fundi til þess að finna leið til þess að “ólukku menn” (eins og Villi kallaði þá í viðtali) myndu láta borgabúa og aðkomufólk í friði og ekki vera að betla pening, því það er slæmt fyrir ímynd miðborgarinnar. Þeir fá sér nokkra bolla af kaffi og töluvert af koníaki og ræða íbyggnir á svip og einbeittir mjög og síðan kemur lausnin eins og morgunsól að kvöldi..: “Heyrðu Íbbi” segir Villi spenntur. “Ég er búinn að fatta þetta”. Heldur hann áfram og dreypir á koníakinu. “Nú, lát heyra melur” Svarar Ívar og er farinn að kippa. “Svarið er svo einfalt að það er bara djodd” Segir Villi sigri hrósandi “Við tökum þá bara heimaskíts-mát, skilurru!!”. “Hverja?? Róna-helvítin??” Spyr Ívar kominn í gírinn og til í spelið. “Já maður, við tökum bara kælinn í burtu og þá vita “the Bums” ekkert hvernig þeir eiga að snúa sér” Segir Villi hlægjandi “þeir standa þá bara með hundrað-kallinn sinn og horfa inn og hugsa, nei fokk maður, hvar er kælirinn...??? HEY STRÁKAR!!! Það er bara búið að taka fokkin kælinn maður, hvernig eigum við að geta fengið okkur bjór núna, ekki ætla ég að drekkann svona hland-volgann og ógeðslegann”.... Heldur Villi áfram og sýnir Ívari látbragð ólukku-mannana með leikrænum tilburðum. “NÁKVÆMLEGA MAÐUR.... afhverju fattaði ég ekki þetta” Segir Ívar og kippist til enda er kókaínið farið að virka vel á hann. “Koddu maður, drífum okkur bara niðureftir núna og slökkvum á þessum helvítis kæli... Ha Villi, hringdu á Taxa maður og taktu einn kaldann með í nesti... ekki volgann skilurru?!?! Þetta kunni Villi vel að meta og hlógu þeir félagar dátt. “Heyrðu Stína” Æpir Villi á aðstoðarkonu sína þegar þeir félagar koma út af skrifstofunni “Einn Taxa fyrir The Vill-Master og Íbba Cool” Svo drifu þeir sig af stað niður í Austurstræti til þess að bjarga miðborginni.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 11:38:31 / binnzi

Whatz with those bikers???

 Aldrei hef ég né mun ég nokkurntímann skilja það hvað fær fólk til þess að koma hingað til lands á hjólum og hjóla síðan eins og einhverjir mental-patients um allar trissur í allskomar veðri og vindum... Hvað vakir fyrir þessu liði, maður mætir þessu pakki uppá heiði, útslefað af þreytu og maður sér í augunum á þeim hvað þau sjá eftir þessari hugmynd sinni... sönnunin á því hvað þetta lið er pirrað (enda skiljanlegt eftir að þú hefur gert þig að almesta fífli sumarsins) er þegar maður mætir karlmanni á hjóli og svo svona 2-3 km á eftir þá mætir maður konunni... kallinn bara að skilja hana eftir. “helvítis kellingin, ég get ekkert verið að bíða eftir henni” hugsar hann og öskrar á hana: “Hitti þig á Húsavík.... á morgun eða hinn bara!!...

Hvað er líka málið með þetta “Saving Iceland” kjaftæði, djöfull langar mig að fara með haglara niður í bæ og slökkva á því liði... common!!! Einhverjir wannabe hippar sem hafa fundið sóknarfæri í því að láta einhverja hálfvita borga sér fyrir að koma og detta í það og kalla sig svo “Atvinnu mótmælendur... Síðan er talsmaður/forsprakki hópsins “Siggi Pönk”... jíbbí kóla!!! Sjá manninn í kastljósinu, svo illa farinn að það skildist varla eitt orð sem maðurinn sagði... svo heyrðist mér hann segja að það þyrfti miklar hetjur til þess að klifra uppí krana og hanga þar... í avörunni... hetjur??? Ég myndi frekar segja að það þyrfti fífl til þess að klifra uppí krana og hanga þar en sitt sýnist hverjum!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 13:56:00 / binnzi

Forgangsröðun

 Það er gott að landinn sé þess fullfær að forgangsraða aðalatriðunum rétt. Á www.mbl.iser þetta röðin á mest lesnu fréttunum í augnablikinu.
  1. Geir Ólafs hafnar ásökunum um falsað bréf
  2. Skilnaður í kjölfar aðalstignar
  3. Vill tífalda kauphækkun
  4. Ákærður fyrir tilraun til manndráps
Það er alveg borðleggjandi að það að Geir Ólafs hafi falsað meðmælabréf sem átti að vera frá nafna hans og forsætisráðherra okkar, Geir Haarde þykir nú mun merkilegri frétt en það að maður hafi verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, svo ég tali nú ekki um að að einhver fyrirsæta hafi verið að skilja við ljótann mann sinn í Bretlandi sem ég veit hvað hvorugt heitir.... Við íslendingar viljum ekki heyra minnst á morð eða einhvern hrottaskap en höldum vart vatni yfir því hvað fína og fræga fólkið er að bralla. Magnaður andsk....

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 12:32:35 / binnzi

and the winner is...

Eins og talað var um þá er komið nýtt “nikk”. Þetta þurfti að vera skothelt... algjörlega bullet-proof. Nýja “nikkið” þufti að geta lýst persónu-eiginleikum mínum sem og atferlis-eiginleikum. Þar sem að ég er ómissandi partý-ljón og allra yndisauki þá hefur mér ávalt fundist eins og ég lyfti partý-um/djammi á hærra plan, og öllum léttir þegar ég mæti á svæðið líkt og ég sé að létta öðrum vinnuna.... Því er nýja “nikkið” = “TJAKKURINN” og fylgir því alveg splunku nýtt “move” og er ég nú þegar farinn að vinna í “Tjakk-dansinum” og verður það klassískt verkamanna-stéttar ballett eins og Tjakkinum einum er lagið... “Tjakkaðu þig upp kallinn minn, það er kominn partý-tími!!!”

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 18:42:11 / binnzi

Nýtt nikk commin’ up!!!

Nú styttist í það... kominn tími á nýtt nikk. Maður hefur gengið undir mörgum nöfnum, Busterinn er klassískt, síðan er það náttúrulega Skywalkerinn (sem Geiri reyndi að eigna sér síðarmeir... þessir Frammarar!!).

Fulla Húsið var það eina sem gat lýst mér sem knattspyrnumanni í gamla daga þar sem maður gat spilað allar stöður, svo var Campos-inn vinsælt líka þegar maður þeyttist milli stangana eins og köttur!!!

Tudda-temjarinn er eitt af þeim nikkum sem aldrei náðist að festast almennilega nema þá í Blönduhlíðinni eftir að ég snaraði tuddann 13 ára gamall og sló þar öllum bændunum við við, þá gengu sögur af heljar-menninu “Tudda-Temjaranum” úr kaupstaðunum um allar sveitir.

Á seinni-unglingsárum þá fékk ég nikkið “Reddarinn” þar sem ég hafði svakalegt lag á því að redda hlutum eins og ekkert var. 

Binni-Strípa var nett þegar ég gekk um með álstrípur og nýkominn í ljós, strákarnir voru kannski djelló en tjellingarnar voru að digga það....  

En það styttist í nýtt nikk og er stefnan að opinbera það á föstudaginn áður en við strákarnir förum í menningar-reisu norður í land og tökum þátt í aldar-afmæli Tindastóls. Þetta verður sannkölluð menningar-reisa þar sem drukkið verður í sig Skagfirska menningu eins og hún gerist best.... með tilheyrandi þynnku og alles... þetta verður dúndur og konulaus ferð, enda tekur maður ekki timbrið með sér í BYKO!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 17:12:38 / binnzi

Loksins eitthvað krassandi

Mikið var að það kom á sjónarsviðið stjörnu-spekingur sem þorir að koma með hina hliðina á stjörnumerkjunum. Maður er orðinn svona full saddur af öllu þessu hóli og krúsidúllum sem hefur alltaf staðið í svona merkja-spám. Hérna er önnur hlið á Voginni sem ég fæddist undir

(23.sept-23.okt)  Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bak við aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvarðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekin af því að smjaðra fyrir öðrum.

Þetta er nú ekkert svo fjarri lagi!!!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 17:39:37 / binnzi

Why...WHY!?!?

Fly on the wings of.... Fram!!! Þetta er nú með því daprara sem ég hef heyrt og hvað þá séð!! Mikið rosalega hlýtur það að vera átakanlegt að vera Frammari, hvort sem það er í pólitík eða í boltanum... Kunna menn ekkert að skammast sín!!!

http://www.fotbolti.net/annad/WingsofFram.wmv   


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 15:35:21 / binnzi

Eitt og annað...

Slæmar fréttir af þorskinum, ekki endilega fyrir þorskinn sjálfann, heldur fyrir okkur sem borðum hann... nei hvaða vitleysa er þetta, við íslendingar borðum náttúrlega ekki þorsk, við borðum ýsu, sennilega af því að hún er kvenkyns og okkur þykja konur góðar. Þorskurinn er gay, alveg urrandi gay og þess vegna bætist svona lítið í stofninn og sjómennirnir verða alveg brjálaðir því þeim þykir nú nóg um hommann á landi svo að hann sé ekki farinn að taka yfir miðin líka!! Þeir vilja taka Færeyjar sér til fyrirmyndar þar sem þeir eru nánast búnir að útrýma þorskinum, þetta kunna menn að meta því að ekki vilja þeir að homma-árátta þorsksins smiti útfrá sér og að ýsan, karfinn eða hvað þá Laxinn taki upp slíka kynvillu... það er þessvegna sem menn eru að mótmæla skýrslu hafró, hún hefur ekkert með verðmæti að gera, sjómenn eru bara búnir að fá nóg af þessu dekstri við hommana!!

Útsýnið er ekki ókeypis, það er farið að sanna sig. Það á að selja nýju blokkar-íbúðirnar í skuggahverfinu á 230 mills. og er skýring á hinu háa verði er sagt að miklu leyti stýrast af staðsetningu, gæðum húsbygginganna sjálfra og öðrum þáttum á borð við gott útsýni.... KOMMON!!! Þetta sýnir hversu veruleikafyrrt við erum að verða, hvað verður til þess að fólk fari að hugsa svona? Liggja einhverjar 100 millur í því að hafa útsýni yfir sjóinn og esjuna þegar það rignir ekki í Reykjavík?? Þá segi ég bara eins og drykkjumaðurinn sem samkvæmt læknisráði var sagt að hætta að drekka elleðar hann myndi missa sjónina; “Ég hef séð nóg”

Við búum við “Lúxus-vandamál” við fáum sjokk þegar að einhver er tekinn á 140 km hraða eða þegar fréttir berast af fíflum sem fóru að róa yfir breiðafjörð og heyrðist ekkert af í 15 klukkutíma. Landinn stendur á andanum yfir þessu og kveikir á kertum og fer að biðja. Hvernig væri nú að hringja í forsetisráðherra Palestínu og diskútera þetta við hann, fá smá feed-back frá honum á þessi “vandamál” okkar. Hann myndi örugglega segja; “já ok, hvað segirðu voru einhverjir á árabát sem að týndust? Nei nei ég er ekkert busy, ég skil þig vel. Það er svosem ekkert að frétta af mér, reyndar var verið að skjóta eldflaugum á húsið hjá mér og 20 manns létust en það er nú ekkert sem við kippum okkur upp við hérna í Paló en segðu mér meira af þessu bátafólki, þetta er hræðilegt að heyra!”


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 18:05:45 / binnzi

Nei nú hringi ég í Jens!!!

Nei fjandinn hafi það.... ég lofaði sjálfum mér að hætta svona skrifum eins og pósturinn er hér að neðan. Ég vil ekki vera einhver pólitískur-þjóðfélags-rínir ég vil heldur vera afslappaður-þjóðfélags-grínir, það var alltaf pælingin upprunalega þegar ég fór út í það að “blokka” og það skein í gegn í mínum fyrstu færslum (að mínu mati).

Helvítis kosningarnar spilltu mér, drógu upp í mér dýrið og lét mig verða of praktískann og jafnvel leiðinlegann (það má þó deila um það og mun ég því alltaf mótmæla). En þetta gerist alltaf fyrir kosningar, þá skiptist landinn uppí lið, sjallarnir hópa sig saman, svo kratarnir, kommarnir, haukdælingarnir og sjómennirnir. Allir fara í sitt lið, ég í blátt vesti, Ingi Elvar í rautt vesti, Birkir Már fór í grænt vesti og svo er bara spilað, allir á móti öllum, algjör mýrarbolti af bestu gerð og það eina sem ávinnst er að maður verður drullugur uppá hnakka og þarf að fara í langa sturtu til þess að þrífa af sér skítinn eftir á. Svo þarf að koma sér aftur í gírinn að verða almennur, rólegur, fyrirmyndar borgari.

Eitthvað virðist sturtan mín samt vera orðin slöpp, svona full löt eitthvað því að seint hefur runnið af mér drullan og vonandi var ég að hósta upp síðasta horinu núna í morgun. Ég vona það allavega, traustum lesendum mínum (öllum 15) til mikils léttis.

Nú má ekki reykja á skemmtistöðum, mér fynnst það frábært, öðrum finnst það glatað. Sumir segja að þetta muni verða til þess að einhverjir skemmtistaðir (fyrirtæki) muni fara á hausinn... jahh, það verður nú að fá að koma í ljós Kormákur minn og ljótt þykir mér þegar menn (og þá sérstaklega eldhugar/frumkvöðlar) gefist svona auðveldlega upp fyrirfram. Ég spyr, verður ekki bara meira flæði á barinn til að kaupa bjór því að nú mun mikill hluti viðskiptavinanna ekki lengur geta hangið aðgerðarlaus í sætum sínum og reykt sig í hel. Allavega er það mín reynsla (eingöngu af veitingastöðum þó ) að verstu kúnnarnir eru þeir sem reykja, þeir koma inn, fá sér sæti, panta vatn og sitja svo og reykja út í eitt og halda sætunum uppteknum og menga andrúmsloftið fyrir “the big spenders” (like myself!!)

Koma svo Kormákur, gefðu þessu séns og taktu slaginn, bryddaðu uppá einhverju ferskara en nöldri til þess að halda þínum stað gangandi!!

Áfram Ísland - á toppnum án tóbaks.... en munntóbak er í lagi þar sem það angrar ekki neinn nema þá hana Arndísi hérna í gamla daga þegar einn munntóbaks-pokinn festist í spöngunum eftir einn vænann sleik við Bjössa Týra, sjálfann fyrirliðann!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 12:29:05 / binnzi

What's the fuzz....?

Ég fagna þeirri umræðu sem hefur verið meðal annars á vef þjóðviljans þar sem segir meðal annars: “Það er löngu tímabært að menn horfist í augu við breytta atvinnuhætti og leyfi byggðarlögum sem ekki bera sig að leggjast af. Eins og þau hafa alltaf gert og eiga að gera.” Hérna segja langflestir að um kalt hjarta sé um að ræða þar sem fólk hefur fjárfest í eignum á þessum stöðum og muni því standa eftir atvinnulaust og eignalaust. Má vera satt en hinsvegar er mikilvægt að skoða hversu mikill skaði þetta er. Tökum Flateyri sem dæmi, þar búa 188 manns (eða þar um bil). Ef þessu bæjarfélagi yrði leyft að leggjast af eins og eðlilegt þætti í ljósi þess að atvinnugreinin sem byggði þessa byggð upp er ekki lengur til staðar þá væri það vissulega leitt fyrir 0,062% landsmanna. Það er jú slæm hugsun að hugsa til þess að fólk missi vinnu sína og þurfi að flytjast úr húsum sínum en þetta ruggar þó bátnum ekki það mikið. Mjög líklegt má telja að allir 188 einstaklingarnir muni fá vinnu á nýjum stað innan fárra vikna eða mánuða en þá er eftir spurningin; hvað með húsið þeirra sem þau töpuðu? Í fyrsta lagi þá hafa þau ekki tapað neinu húsi því þau eiga það enn og geta selt það ef það fæst kaupandi. Oft er talað um að þegar eitt tækifæri tapast þá skapast nokkur í staðinn og ekki er óhugsanlegt að einhverjir aðilar hugnist að kaupa sér 5 herberja sumarbústað á Flateyri fyrir 20-30% upphæð miðað við litlu sumarbústaðina út um allar trissur á suðurlandinu. Ef þetta yrði vinsælt og eftirspurn eftir þessum “bústöðum” yrði góð þá þýðir það aðeins eitt; Hærra íbúðarverð! Og þannig má því snúa þessu “tapi” í “hagnað”. Þetta er alls ekki óhugsandi því að það er fallegt á vestfjörðum og samgöngur til Flateyrar mun betri heldur en á mörgum sumarbústaðar-svæðum þar sem húsnæðið kostar margfalt meira.

En svo er líka önnur pæling sem ég fór að skoða. 2-3ja herbergja íbúð á Flateyri kostar svona c.a. 2,5 milljónir og t.d. á bolungarvík var 7 herbergja hús til sölu á 5,5 milljónir. Ef einstaklingur hefur búið í húsi á Flateyri í c.a. 3-5 ár þá geri ég ráð fyrir því að hann skuldi ekki 2,5 milljónir í húsinu heldur hafi hann borgað þetta eitthvað niður og segjum sem svo að hann skuldi 1,5 milljónir. Svo blasir það við að hann þarf að flytja og kaupa nýtt hús á nýjum stað en enginn vill kaupa húsið hans á Flateyri. Þá situr hann uppi með 1,5 milljónir í skuld vegna verðlausrar eigna (nota bene þetta er miðað við það að bærinn fari í algjört eyði) þetta er vissulega slæm hugsun að c.a. 0,062% landsmanna þurfi að horfast í augu við þetta vandamál (peningalega)

1,5 milljón.... það eru svipuð verðmæti og  liggja í Honda Accord Sport 2003. Ég fór að pæla þetta um daginn þegar allir eru farnir að tala um gróðurhúsaáhrifin og útblástur bíla. Hvað ef á næstu 5 árum koma í framleiðslu bílar sem að mestu- eða öllu leiti ganga fyrir lífrænum orkugjöfum? Ég tel að það yrði til þess að VG og aðrir umhverfis-öfga-menn færu út í það að krefjast reglugerðar um það að banna hinn venjulega bensín-bíl og neyða alla landsmenn til þess að notast við slíkann “umhverfisvænann bíl” Þetta þykir örugglega 30-40% af þjóðinni sjálfsagt. Það myndi þýða það að 70-90% þjóðarinnar myndi þurfa að henda bílnum sínum (þar sem hann væri ólöglegur) og kaupa sér nýjann en sitja samt ennþá uppi með lánið af gamla bílnum, sem margir hverjir kosta mun meira en íbúð á Flateyri.

Ég get alveg sett samansem-merki milli þessara aðstæðna og þess sem upp er komið með sjávarplássin nema að hér er ekki um 0,062% þjóðarinnar að ræða heldur 70-90% Ég spyr því einfaldlega.... hvaða helv. læti eru þetta eiginlega?!?!


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 13:02:34 / binnzi

No more politics for me...

Djö er maður sloj... alveg út-pískaður eða kannski bara út-pólitískaður eins og Geir Hilmar Haarde virtist vera í gær. Hann var sko ekki í gírnum til að ræða málin enda orðinn þreyttur og skil ég hann vel því það getur ekki verið upplífgandi að sitja með Ingibjörgu og Össuri marga tíma á dag, marga daga í röð og hlusta á nöldurstóninn í þeim. En kallinn lifði það af og skil ég vel að hann vildi komast heim í bólið, fá sér mjólkurglas og kexköku og eina feita Íbúfen til að slá á hausverkinn. Svo lagðist hann örugglega á koddann og hugsaði með sér “af hverju gerðist ég ekki trommari” það kemur allavega meira vit útúr trommusettinu heldur en Fiska-kláms-sjúklingnum og Sollu frekju. Síðan þegar að Geiri kallinn var alveg að sofna og hausverkurinn farinn á brott þá brosti hann sínu æfða brosi og sagði við sjálfan sig: “hehehe plataði Sollu í utanríkisráðherrann... hún verður þá allavega lítið á landinu”. Já hann Geiri er refur, sannkallaður Fox.... Politic Fox!!!

Já nú getur maður farið í pólitíkst frí og næst á dagskrá er þábara að fá sér öl og horfa á sína menn hirða meistaradeildar-titilinn

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 13:25:04 / binnzi

Sumarið er tíminn....

 ...þetta kann Binnzinn að meta, sumarzæla með stöku él. Greyið Reykvíkingarnir komnir á sumardekkin og farnir að keyra útaf hver í kapp við annann... hvílík fífl! Sauðburðurinn er hafinn og maður farinn að fá vatn í munninn þegar maður sér öll litlu lömbin, eins gott að gera grillið klárt því það er að fara að streyma nýtt kjet á teinanna. Síðan styttist í sláttinn. Þegar ég var gutti þá var ekkert skemmtilegra en að komast í heyskap. Öll familían útá túni hjá afa að taka í bagga og stundum fékk maður að keyra vörubílinn. Binnzanum þykir það samt mikil synd að rómantík sveitalífsins dó með rúllu-bindi-vélinni. Þó svo að ég fagni hagræðingunni þá sem harma ég það sem rómantískur-raunsæismaður að hið sanna sveita-andrúmsloft sem skapaðist í gamla heyskapnum skyldi hverfa inní í risa vélar þar sem bændurnir hlusta á Rammstein í botni í stað þess að vera úti að skemmta sér með vinum og börnum sínum.

Þau berjast stundum í mér hetjan og hóran.

Talandi um sumrið þá þýðir það að enski boltinn hættir að rúlla en þá tekur sá Íslenski við (henni Birtu til mismikillar ánægju). Fyrir okkur íslendinga sem erum örugglega það land sem fylgist mest með enskri knattspyrnu og sláum þar næstum sjálfu Englandi við þá er Íslenski boltinn bráð nauðsynlegur þar sem hann slær á mestu frákvarfseinkennin. Ef við líkjum okkur sem alkahólistum þá er enski boltinn bjór og sá íslenski pilsner, bara svona til að fá bragðið!!!

Áfram Valsarar!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 11:06:25 / binnzi

Frá öðru sjónarhorni....

...Fyrirtækið Kambur hefur starfað á Flateyri undanfarin misseri og haft þar helming íbúanna í vinnu. Þó svo að helmingur starfsfólksins séu af erlendu bergi brotnir þá er ljóst að mikið neyðarástand hefur skapast á Flateyri nú þegar Kambur hefur hætt vinnslu.... eða er það?

Binnzinn er þekktur fyrir að horfa á hlutina frá mismunandi sjónarhornum, þótt hann sé þrjóskur á stundum þá er hann jú yfirleitt sanngjarn (enda fæddur í vogar-merkinu) Binnzinn hefur einnig lengi haft sterkar skoðanir bæði á Landbúnaði og Sjávarútvegi, þáttum sem eru hvað mest í ólagi hér á landi, þó aðallega Landbúnaðurinn enda Frammararnir búnir að ríghalda í það að bændum séu gefinn rjómi á silfurfati á meðan aðrir atvinnuvegir verða að láta sér duga undanrenna!

En hvað ef að allar fréttir væru nú á þennann veg: “Flateyri laust úr prísundinni” eða “Loksins fær mannauður Flateyrar frelsi til að athafna sig” Kannski kjánalegt en ég er þeirrar skoðunar að þessi sjávarútvegur hefur hneppt öll smáþorp í þrældóm og hinn góði mannauður “plássana” þarf að vinna þarna og hefur ekkert val! Spáið í því (þetta er reyndar fræðileg fullyrðing ) að til þess að nýtt fyrirtæki sé stofnað þá þarf fyrst og fremst starfsfólk (mannauð ) og það sem er að drepa öll 250-800 manna samfélög er það að sjávarútvegsfyrirtæki eru með þessi þorp í ánauð, þau hirða allt starfsfólkið og því verður engin framþróun. Sem dæmi þá má vel vera að Glitnir hafi hugsað sér að stofna einhverja bakvinnsludeild og talið Flateyri vera góðann stað til að staðsetja þessa deild, þetta er einföld vinnsla og á Flateyri er traust starfsfólk og húsnæði sem kostar mun-mun-minna heldur en í Reykjavík. Kaupþing er með svona bakvinnslu á Siglufirði og þetta á bara eftir að færast í aukanna eftir því sem fyrirtæki stækka á íslandi og hagræðingarmöguleikar aukast. Þetta var ekki möguleiki á Flateyri fyrr en nú...!

Fiskurinn er ekki allt, svo einfalt er það

Frelsum smábyggðirnar, FISKINN BURT!!!! => hvað ætli Sigurjón segi við því?


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 12:27:31 / binnzi

Stjórnin öruggari en smokkurinn

Aldrei spurning að stjórnin myndi halda, leitt samt hvað frammararnir eru míg-lekir, það eiga þeir svo sannarlega sameiginlegt með nöfnum sínum í Safamýrinni. Talandi um sparkandi Frammara þá held ég að þeir séu Guðs-lifandi fegnir að það muni einungis eitt lið falla úr úrvalsdeild í ár, þar með hafa líkurnar á því að þeir haldi sér uppi aukist um 50%!!!

Eins og sungið var á Kosningavöku í Berjarimanum þá er aðeins “EINN GEIR HAARDE” og hvílíkur kóngur sem kallinn er, Dabbi þarf að fara að passa sig.

Mikið vildi ég óska þess að það væri svona “on-off” takki á Steingrími J. og Sollu Bollu, það er alveg makalaust þegar að þetta fólk fer að opna munninn þá hrinur fylgið!! Svo þegar Steini Súri er spurður af því hvort hann sé ekki svekktur með að fylgi í skoðanakönnunum skuli hafa hrunið úr 29% í 14% þá kviknar í komma-hjartanu og hann fer að láta illum látum og fer að kalla sig hinn eina sigurvegara kosninganna... rétt rúmlega 10 hver maður kaus fíflið og hann segir það skýr skilaboð um að hans flokkur eigi að vera í stjórn. Svo hnakk-rífast þeir í spjallþáttum, heimtandi það að hann sé beðinn afsökunar af hálfu framsóknarmanna og fer síðann í næsta blað og kitlar við tilhugsun um “minnihluta-stjórn” með frammarana sem svona “free-lance” flokk!!

...Já mikið vildi ég óska þess að það væri svona aðalega “off-takki” á honum Steingrími J. ég myndi nota hann óspart!!

En mikið er nú samt gaman að sjá hvað vinstri-almenningur (þótt smár hluti sé ) er súr og svekktur. Það kom til mín kona í gær og sagðist bara ekki geta skilið það hvers vegna aðrir en þeir sem ættu fyrirtæki myndu kjósa Sjálfstæðismenn. Ég benti henni vitanlega á það að svarið væri einfalt, fólk væri, sem betur fer, ennþá upp til hópa SKYNSAMT!... skynsemi er orð sem Komma-hjartanu er illa við og hún tekur kipp (enda sovét-hjartað komið á yfirsnúning) og æpir á mig að þetta eru bara ríkir kallar sem eiga allt og eitthvað sem ég gat ekki alveg greint, ofsinn var slíkur. Ef satt er (sem það er ekki) þá þýðir það að 36,6% þjóðarinnar sé ríkt fólk sem getur varla aura sína talið, 11,7% (sem kusu Frammarana) hljóta þá að vera í efri mörkum þess að vera ríkir skv. skilgreiningum kommans þar sem þeir eru hliðhollir Sjálfstæðisflokknum. Svo getum við farið í það að telja þá sem kusu Frjáls-lynda flokkinn (7,3% þjóðarinnar) að það séu einungis skiptstjórar og sjómenn sem vilja fá meiri peninga þar sem þeir eru næstum búnir að eyða öllum kvótapeningnum sem þeir annað hvort seldu sjálfir eða erfðu frá pabba, þá erum við komin með 55,6% þjóðarinnar sem borðar Cherioos-ið sitt með Platínu skeiðum og bryður gullhúðað Extra-tyggjó sér til gamans.

Notum síðan tölfræðina sem segir að meðaltal sé alltaf 50%, sem ætti þá að þýða það að 50% landsmanna væru “meðal-ríkir”. Skv. kosningunum og skilgreiningu kommans þá gengur það ekki upp þar sem við værum komin með 105,6% köku. Ég gef mér því að 40% þjóðarinnar getur talist “meðalríkt” og þá er hlutfall þeirra sem eru ógeðslega-ríkir, frekar-ríkir og meðal-ríkir = 95,6%. Niðurstaðan er því að 4,4% þjóðarinnar eru þá pínu-fátækir, frekar-fátækir eða mjög-fátækir... er það góður árangur eða slæmur?

Ég vil vitna í orð frelsarans sem sagði annarsvegar þegar hann var spurður hví hann væri að bruðla með rándýr smyrsli í stað þess að selja þau og gefa fátækum; "Vér munum alltaf hafa fátæka" og var þá að tala um að það væri alltaf hluti af mannkyninu sem vildi-nennti-gæti ekki sótt sitt, það væri hið náttúrulega eðli. Síðar segir Frelsarinn einnig; "sælir eru fátækir, því þeirra er himnaríki".

Þetta er skemmtilegt í ljósi þess sem VG boðaði í sinni kosningabaráttu; “útrýmum fátækt” var Ögmundur þar með að segja; “útrýmum himnaríki” ....það væri reyndar kommanum líkt!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Dagsetning
8. febrúar 2012
Klukkan